Tuesday, January 08, 2008

Skoli: Önn 6

Ég sit við hliðiná nýrri stelpu af því ég er sjálf semí ný stelpa
hún er svo morbit að mér er farið illa með það að lifa.

Ég er í vefsíðugerð

Það er leiðinlegt.

Í alvöru.

Kennslukonan er samt fyndin, talandi um múm og verandi
freðnuhippaleg kona. Hitt vandræðalega fólkið er líka frekar
fyndið, sumu fólki finnst augljóslega mjög asnalegt að kynna
sig. Svoleiðis var það ekki í gamla daga. Þá var gaman í
tíma að kynna sig. Mér fannst það allavega.

Að sjálfsögðu vantar heldur ekki að það sé eldri kona hér.
Af hverju eru eldri konur allstaðar í öllum framhaldsskólum
sem hafa ekki bekkjakerfi, mér finnst oftast frekar óþægilegt
þegar mömmufílingur fer í gang hjá kennslukonum og
eldri nemendum þeirra.

Ég er að fara að taka strætó í fjórða skiptið í dag á eftir
spilandi Boards of canada úr póðanum hans Stefáns.
Ég er komin með nóg af krönki.

Boards of canada er viðeigandi á fyrsta degi skólaannar.

Tuesday, November 06, 2007

Noj noj

Hvað er að mér?

Í gær hélt ég að ég myndi deyja í loftárás.
Það er flugeldum að kenna. Ég var alveg viss
um að það væri verið að ráðast á okkur
vegna friðarljóssins.



=byrjun á heimsenda

Talandi um heimsenda, þá var ég að labba í
skólanum mínum í gær og rak augun í auglýsingu
þar sem einhver guðsorð voru rituð, en þegar
ég fór nær þá var þetta bara skrítin auglýsing
með allskonar ljótum ritningum í og eitthvað
um að biblían hefði spáð fyrir þessu öllu
(þ.e. hungur, stríð og sifjaspell)
Getur einhver plís sagt mér hvað er í gangi?
Það var ekki verið að auglýsa neitt??

heimur?

Wednesday, October 17, 2007

Airwaves

Sjitt félagi hvað ég er spennt fyrir
airwaves. Ég ætla að vera hæ hó
hamingjusöm allan tímann.
Ég vorkenni fólki sem gleymdi að kaupa miða
alveg pínu. Ég er glöð að eiga mömmu
sem sér um mig.


Ég ætla allavega að fara að sjá:

Miðvikudagur:
Svana í skífunni klukkan hálf átta.
Klappliðið mætir á staðinn og styður
stelpuna sína.
Svo held ég að ég hangi bara á gauknum
með:
O.N.E.
Original Melody
Sesari A (gamli dagar kommon!)
Audio improvement
Poetrix (réttur tími til að fara á klóssettið
og fá sér jafnvel bjór á barnum)
XXX Rottweiler

Fimmtudagur
Er alveg einstaklega óspennandi fyrir utan
það að ég ætla að fara á Jenny Wilson sem
ég missti því miður af síðast. klukkan
21:00 í listasafninu. Ég er alveg geðveikt
opin fyrir hugmyndum á fimmtudaginn.

Föstudagur
Trentemöller 21:30 Listasafn
Forgotten Lores 23:15 Iðnó
Buck 65 00:00 Iðnó
Svo eftir Buck 65 grunar mig
að það verði fjör á Nasa
En þar eru Hairdoctor og fleiri.

Laugardagur
Fokk.. Leiðinlegt að þurfa að gera
uppá milli Chromeo og Bloc Party
En ég ætla mögulega að meta stöðuna
á því að fara á bæði.
Bertel! 20:00 Gauksi
Kenya (hljómsveitin hennar Svönu) 21:15 Lídó
Opið plan
00:00 Bloc Party
00:30 Mögulega Chromeo
01:00 FM Belfast


Jájá, mitt plan þú mátt endilega
koma með þitt.



P.s. vá Linda.. Er eitt ár síðan?

Ég er líka að vinna heima (á prikinu) frá
2-7 laugardag og sunnudag, ef ykkur langar
að versla ykkur þynnkuborgara og bjór, hlusta
á tónlist og rabba.

SJÁUMST Á EIRVEIVS.

Monday, October 15, 2007

Nosti

Er mín kynslóð að verða gömul ha?
Hver er mín kynslóð, er klisja að
segja að ég geti ekki tengt mig
nægilega vel við flesta jafnaldra?

Mér líður á annarri kynslóð allavega
og mér finnst ég frekar gömul.
Samt þegar ég hugsa mikið þá er ég
alltof ung. 18 ár búin, 8 staðir
búnir. 14 hús búin, 68 vinir búnir
fótbolti búinn, 3 hestar búnir,
pælingar um félagsfræði löngu búnar
og ég er með
króníska nostalgíu og brjálaða
þörf fyrir upprifjun.

Hvað gleymist og verður búið næst?











Æi bara nokkrar myndir sem segja
milljón orð, kannski ekki fyrir
ykkur allavega fyrir mig og hina.
Hina sem eiga aldrei eftir að lesa
þetta blogg.

Já, ég er með emó nostalgíu
bless.

Monday, September 03, 2007

Rapp í skólanum

Ég var hoppandi á lazerbojnum með klút og anonymús
stelpur í fýlu útaf tónlistinni. HEY ÞETTA
ER MITT PARTÝ OG ÉG SPILA BARA ÞAÐ SEM ÉG VIL
Partýfólkið varð vandræðalegt og týndist fljótt út.
Ég öskraði á eftir þeim að þakka fyrir sig að minnsta
kosti, og helst þakka fyrir rappið.
Dólgur og djammari á prikinu seinna um kvöldið
SPILAÐU BARA ÞAÐ SEM ÉG VIL HEYRA HERRA PLÖTUSNÚÐUR
Lélegi plötusnúður biggi í maus sem ég las í
blaði um daginn að væri ekki lengur biggi í maus
Fréttin um stelpuna sem fór í gegnum farangurslúguna
í tollinum skyggði samt á.
Í skólanum þunn og í allan dag er fólk með leiðinda
tónlistarsmekk búið að spila tónlist sem ég vil
ekki heyra.

AF HVERJU GETUM VIÐ ALDREI HLUSTAÐ Á RAPP Í SKÓLANUM
AF HVERJU GETUM VIÐ ALDREI HLUSTAÐ Á RAPP RAPP RAPP RAPP.

(ekki samt eins og í laginu í gamla daga)